Viðurkenningar Íslenskrar málefndar 2019
Árlega veitir Íslensk málnefnd viðurkenningar fyrir eitthvað sem vel er gert á svið málræktar eða líklegt er til að efla íslenska tungu. Á málræktarþingi sem haldið var 26. september og bar yfirskriftina Hjálpartæki íslenskunnar, fengu eftirtaldir aðilar viðurkenningu:
Jón Gunnar Þorsteinsson hjá Vísindavef Háskóla Íslands fyrir skilvirka og vandaða þjónustu við almenning og miðlun þekkingar um margvísleg málefni á netinu á íslensku.
María Guðmundsdóttir hjá Samtökum ferðaþjónustunnar og Sveinn Aðalsteinsson hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar fyrir kennsluvefinn Orðin okkar á íslensku sem ætlað er að auðvelda erlendu starfsfólki að tileinka sér þann orðaforða sem nauðsynlegastur er á hverju sviði.
Birna Arnbjörnsdóttir hjá verkefninu Icelandic online fyrir íslenskunámskeiðið Bjargir, sem ætlað er að auðvelda innflytjendum að ná sem fyrst nauðsynlegum tökum á málinu, til þátttöku í starfi og daglegu lífi.
SneakersbeShops® , Shop Online For Luxury, High-End Fashion, Expensive & Authentic Designer Brands | nike free runs shoes for men 13 wide feet - 006 - Nike Air Max 97 Γυναικεία Παπούτσια Μαύρα 921733