Stefnuskrá
Íslenskrar málnefndar 2006–2010
Íslensk málnefnd
Menntamálaráðherra skipar Íslenska málnefnd til fjögurra ára í senn í
samræmi við ákvæði 9. gr. laga nr. 40/2006 um Stofnun Árna Magnússonar
í íslenskum fræðum. Í 9. grein segir meðal annars: „Hlutverk Íslenskrar
málnefndar er að veita stjórnvöldum ráðgjöf um málefni íslenskrar
tungu og gera tillögur til menntamálaráðherra um málstefnu, auk þess
að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu. Málnefndin getur átt
frumkvæði að ábendingum um það sem vel er gert og það sem betur má
fara við meðferð íslenskrar tungu á opinberum vettvangi.“
Megináhersla í starfi nefndarinnar
Á tímum hraðvaxandi alþjóðasamskipta þar sem notkun erlendra tungumála,
einkum ensku, verður æ ríkari þáttur í íslensku samfélagi er brýnt að
tryggja stöðu íslenskrar tungu. Eitt af mikilvægustu verkefnum
Íslenskrar málnefndar er að vinna markvisst að því að íslenska haldi
gildi sínu í þessu breytta umhverfi og verði áfram nothæf og notuð á
öllum sviðum íslensks þjóðlífs. Þau verkefni sem lýst er hér að neðan
bera vott þessari megináherslu í starfi nefndarinnar.
Verkefni á starfstímabilinu 2006–2010
Stærsta einstaka verkefni Íslenskrar málnefndar á skipunartímanum er
mótun íslenskrar málstefnu í samræmi við lögbundið hlutverk
nefndarinnar. Skipaðir verða vinnuhópar um einstaka þætti þeirrar
vinnu og er stefnt að því að drög að íslenskri málstefnu liggi fyrir í
árslok 2008. Birt verður ályktun um stöðu íslenskrar tungu árlega á
degi íslenskrar tungu. Auk þess hyggst nefndin starfa að eftirtöldum
verkefnum:
(1) Íslenska verði lögfest sem opinbert tungumál á Íslandi.
Íslensk málnefnd telur brýnt að réttarstaða íslenskrar tungu í íslensku
samfélagi verði tryggð í stjórnarskrá. Íslenska er í reynd opinbert mál
í íslensku samfélagi án þess að kveðið sé skýrt á um það í lögum.
Tungunni hefur ekki stafað umtalsverð hætta af veikri lagalegri stöðu
hingað til en aðstæður geta breyst hratt. Í ljósi hratt vaxandi
alþjóðasamskipta og aukinnar notkunar erlendra tungumála á Íslandi
telur Íslensk málnefnd nauðsynlegt að íslenska verði lögfest sem
opinbert tungumál á Íslandi (jafnframt íslensku táknmáli, sbr. næsta
lið).
Lögð var fram þingsályktunartillaga á Alþingi árið 2003 (130.
löggjafarþing 2003–2004, þskj. 517, 387. mál; flutningsmenn Mörður
Árnason o.fl.) um að forsætisráðherra yrði falið að setja á fót nefnd
sem athugi réttarstöðu íslensku sem þjóðtungu Íslendinga og opinbers
máls á Íslandi. Alþingi vísaði þessari tillögu til ríkisstjórnar vorið
2004 en ríkisstjórn hefur ekki enn tekið neina ákvörðun um meðferð
málsins (133. löggjafarþing 2006–2007, þskj. 276, 267. mál: fyrirspurn
til menntamálaráðherra um réttarstöðu íslenskrar tungu og stöðu
annarra tungumála í löggjöf og stjórnkerfi). Íslensk málnefnd styður
áðurnefnda þingsályktunartillögu og mun óska eftir því formlega við
ráðamenn að sett verði á fót nefnd til að vinna að framgangi þessa
máls.
(2) Réttarstaða íslenska táknmálsins verði tryggð í lögum.
Íslensk málnefnd telur brýnt að réttarstaða íslenska táknmálsins verði
tryggð og það verði viðurkennt sem fyrsta mál heyrnarlausra,
heyrnarskertra og daufblindra, jafnrétthátt íslensku. Lagt hefur
verið fyrir Alþingi frumvarp til laga um íslenska táknmálið sem fyrsta
mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra (133. löggjafarþing
2006–2007, þskj. 938, 630. mál; flutningsmenn Sigurlín Margrét
Sigurðardóttir og fleiri; áður lagt fram á bæði 130. og 131.
löggjafarþingi.) Íslensk málnefnd styður baráttu heyrnarlausra fyrir
framgangi þessa máls.
(3) Um íslensku sem móðurmál
Íslensk málnefnd telur mikilvægt að hvergi verði gefið eftir í kennslu
íslensku sem móðurmáls í skólum, allt frá leikskóla í framhaldsskóla.
Hér gegna kennarar á öllum skólastigum lykilhlutverki. Menntun þeirra
þarf að vera í samræmi við áherslur og kröfur skólanna. Mikilvægt er
því að standa vörð um móðurmálsþáttinn í kennaranáminu. Í leikskólum
eru börn á máltökualdri og leikskólakennarar þurfa að vera færir um að
örva málþroska á markvissan hátt og vera góðar málfyrirmyndir. Efla
þarf kennslu í íslensku í grunnskóla og færa til samræmis við það sem
er í nágrannalöndum þar sem hlutdeild móðurmálsins er stærri en í
íslenskum grunnskólum. Grunnskólakennarar þurfa að hafa víðtæka
þekkingu á íslensku máli, rituðu og mæltu. Slík þekking ætti að vera
sjálfsagður þáttur í kennaranámi svo að tryggt sé að kennarar öðlist
færni í að beita máli í samskiptum við foreldra og nemendur. Í
framhaldsskóla er sérhæfing meiri en á leikskóla- og grunnskólastigi en
íslenskt mál er engu að síður afar mikilvægt. Einnig er brýnt að
háskólanemar séu færir um að tjá sig í ræðu og riti á íslensku. Íslensk
málnefnd hyggst beita sér fyrir eflingu íslenskukennslu á öllum
skólastigum og fylgjast grannt með námskrárvinnu.
(4) Íslenskukennsla fyrir útlendinga verði efld.
Fólki af erlendum uppruna hefur fjölgað mjög á Íslandi undanfarin ár.
Mikilvægt er að því standi til boða vönduð íslenskukennsla. Sú kennsla
þarf að vera aðgengileg og ódýr ellegar ókeypis og eftirsóknarverð
fyrir útlendinga hér á landi. Æskilegt er að vinnuveitendur bjóði
erlendum starfsmönnum sínum að stunda nám í íslensku í vinnutíma.
Jafnframt er nauðsynlegt að efla kennaramenntun þannig að tryggt sé að
jafnan sé kostur á hæfum kennurum sem hlotið hafa sérmenntun til að
kenna íslensku sem annað mál.
(5) Íslensk tungutækni.
Upplýsingatækni verður æ mikilvægari þáttur í daglegu lífi Íslendinga
og er afar brýnt að þeir geti notað móðurmálið á þeim vettvangi. Til að
mynda er áríðandi að ýmiss konar grundvallarhugbúnaður (til dæmis
stýrikerfi, ritvinnsluforrit, póstforrit og vafrar) verði fáanlegur
með íslensku notendaviðmóti og að í algengum ritvinnsluforritum
verði hjálparbúnaður fyrir íslensku, svo sem forrit sem leiðrétta
stafsetningu, málfar og skipta orðum rétt á milli lína. Þá hafa einnig
orðið örar framfarir í vélrænum þýðingum á undanförnum árum og er því
nauðsynlegt að íslenska verði hluti af þeirri þróun. Til þess að staða
íslenskrar tungu í upplýsingatækni sé tryggð þarf að eiga sér stað
kröftugt rannsóknar-, þróunar- og uppbyggingarstarf í íslenskri
tungutækni. Íslensk málnefnd hyggst styðja það starf eins og kostur er.
(6) Málfarsráðgjöf efld og stofnað til símenntunarnámskeiða.
Þær stéttir sem vinna mest með íslenskt mál á opinberum vettvangi,
einkum fjölmiðlafólk og auglýsingasmiðir, þurfa að eiga kost á
vandaðri málfarsráðgjöf og símenntun um íslenskt mál og málnotkun. Hið
sama gildir um kennara á öllum skólastigum en ábyrgð þeirra er mikil í
máluppeldi barna. Íslensk málnefnd hyggst beita sér fyrir samstarfi
viðeigandi stéttarfélaga og háskólastofnana á sviði íslenskra fræða
um endurmenntunarnámskeið. Enn fremur mun nefndin kanna möguleika á að
verðlauna þá fjölmiðlamenn og auglýsingasmiði sem þykja skara fram úr
í meðferð íslensks máls. Markmiðið er að koma af stað
hugarfarsbreytingu þannig að fjölmiðlamenn og auglýsingasmiðir beri
sjálfir ábyrgð á meðferð íslensks máls en velti ábyrgðinni ekki yfir á
málfarsráðunauta eða prófarkalesara. Færni fjölmiðlamanna í meðferð
íslensks máls er ekki síst mikilvæg á vefmiðlum þar sem fréttir eru
iðulega unnar hratt og ráðrúm til yfirlestrar lítið.
(7) Staða íslenskrar tungu í fræðasamfélaginu treyst.
Í heimi fræða og vísinda eru þau skrif mest metin sem birtast í
alþjóðlegum, ritrýndum fræðitímaritum og þar fást ekki birtar
fræðigreinar á íslensku. Íslenskir fræðimenn eru því undir miklum
þrýstingi að fjalla um rannsóknir sínar á erlendum málum, einkum
ensku. Staða íslenskrar tungu í heimi fræða og vísinda er því ekki nógu
sterk. Á Íslandi eru þó gefin út á íslensku ritrýnd fræðitímarit sem
gera miklar kröfur um vísindaleg gæði og nýnæmi. Nefna má að öll
virtustu tímarit í íslenskum fræðum eru íslensk og að langmestu leyti
rituð á íslensku. Þessi tímarit hafa alþjóðlega útbreiðslu, enda eru
íslensk fræði stunduð víða um heim. Birting fræðigreina í þessum
tímaritum er engu að síður minna metin en birting í alþjóðlegum
erlendum tímaritum. Íslensk málnefnd hyggst beita sér fyrir því að
staða íslenskrar tungu í fræðasamfélaginu verði treyst og íslensk
ritrýnd fræðitímarit verði viðurkennd til jafns við alþjóðleg ritrýnd
tímarit.
(8) Nýyrðasmíð efld.
Virkja þarf sköpunarmátt tungumálsins með öflugri nýyrðasmíð. Íslensk
málnefnd hyggst beita sér fyrir því að hlúð verði að orðanefndastarfi,
meðal annars með námskeiðum í orðasmíð. Hvetja þarf
grunnskólanemendur og ungt fólk til þátttöku í nýyrðasmíð með
verðlaunasamkeppn
i.
(9) Hvatt til aukins bóklestrar og bókmenntasköpunar.
Hvetja þarf til aukins bóklestrar og ýta undir bókmenntasköpun, einkum
hjá börnum og unglingum. Það má gera til að mynda með bókmenntaþingi og
ljóðasamkeppni í grunnskólum.
(10) Staða íslensku við hlið ensku verði tryggð.
Enska á víða rétt á sér í íslensku samfélagi, til að mynda í efni sem
ætlað er erlendum ferðamönnum jafnt sem Íslendingum. Brýnt er að enskan
ryðji þar ekki íslenskunni á brott. Ekki getur, svo dæmi sé tekið,
talist eðlilegt að hátíðir eða samkomur haldnar hér á landi beri
einungis ensk heiti, enda þótt þær séu öðrum þræði ætlaðar erlendum
ferðamönnum. Íslensk málnefnd hyggst beita sér fyrir því að íslenska
missi ekki sinn sess við hlið ensku í slíkum tilvikum.
(11) Athygli vakin á því sem vel er gert.
Íslensk málnefnd mun á skipunartímanum vekja athygli á vandaðri og
snjallri málnotkun þegar tilefni gefast.
(12) Endurskoðun auglýsinga um stafsetningu og greinarmerkjasetningu.
Í gildi eru auglýsingar menntamálaráðuneytisins nr. 132/1974 og
261/1977 um íslenska stafsetningu og auglýsingar nr. 133/1974 og
184/1974 um greinarmerkjasetningu. Tímabært er að taka þessar
auglýsingar til endurskoðunar, ekki síst með tilliti til
framsetningar, og mun Íslensk málnefnd beita sér fyrir þ
ví.