Samstarf
Íslensk málnefnd hefur átt langt og gott samstarf við
Mjólkursamsöluna,
m.a. hvað varðar fernuflug
á mjólkurfernum og málræktarþing
Íslenskrar
málnefndar. Sjá
upplýsingasíðu MS.
Málnefndir á Norðurlöndum
Íslensk
málnefnd starfar náið með öðrum málnefndum á Norðurlöndum.
Málnefndirnar eru með sameiginlega vefsíðu, Språknemndene i Norden.
Nefndirnar hittast að minnsta kosti einu sinni á ári á norræna
málnefndaþinginu (Nordisk
språkmøte/Nordmålforum).
EFNIL
EFNIL eru Samtök evrópskra málræktarstofnana sem
stofnuð voru í október
2003. Þau sinna málefnum þjóðtungna Evrópuríkja. Íslensk málnefnd hefur
verið aukaaðili að samtökunum frá 25. nóvember 2005.