Málstefna í mótun – málræktarþing Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar
laugardaginn 10. nóvember 2007
Íslensk málnefnd vinnur nú að gerð fyrstu heildstæðu íslensku málstefnunnar. Hún
var viðfangsefni málræktarþings Málnefndarinnar og Mjólkursamsölunnar sem
haldið var laugardaginn 10. nóvember í hátíðasal Háskóla Íslands kl.
11.00–14.25. Þar var kynnt starf vinnuhópa sem hafa rannsakað stöðu tungunnar
á ýmsum sviðum, þar á meðal í listum, fjölmiðlum, skólum og stjórnsýslu. Einnig
var fjallað um lagalega stöðu íslenskunnar og íslenskukennslu fyrir
útlendinga. Umræður urðu um tillögur hópanna og almennt um málstefnu.
Dagskrá þingsins (pdf-skjal, 91 kb)