Lög um stöðu
íslenskrar tungu og íslensks táknmáls
(61/2011)
Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks
táknmáls tóku gildi 7. júní 2011. Hér
er tengill á lögin.
Í 6. grein laganna er fjallað um Íslenska
málnefnd:
„Íslensk málnefnd.
Ráðherra skipar Íslenska
málnefnd og er skipunartími nefndarinnar fjögur
ár. Í Íslenskri málnefnd eiga sæti 16
menn. Auk þess er nefndinni heimilt að bjóða
mönnum, einum eða tveimur, setu í nefndinni ef
hún telur það nefndarstarfinu til gagns. Hver
eftirtalinna tilnefnir einn mann í málnefndina:
Ríkisútvarpið,
Þjóðleikhúsið, Samtök
móðurmálskennara, Rithöfundasamband
Íslands, Blaðamannafélag Íslands,
Íðorðafélagið fyrir hönd orðanefnda,
Bandalag þýðenda og túlka,
Staðlaráð Íslands, Upplýsing, félag
bókasafns- og upplýsingafræðinga,
Hagþenkir og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Samstarfsnefnd háskólastigsins tilnefnir tvo menn
í málnefndina. Ráðherra skipar tvo nefndarmenn
án tilnefningar og skal annar vera formaður og hinn
varaformaður. Velferðarráðherra tilnefnir þar
að auki einn fulltrúa úr röðum innflytjenda.
Íslensk málnefnd skiptir með sér verkum.
Hlutverk Íslenskrar málnefndar
er að veita stjórnvöldum ráðgjöf um
málefni íslenskrar tungu á fræðilegum
grundvelli og gera tillögur til ráðherra um
málstefnu, auk þess að álykta árlega um
stöðu íslenskrar tungu. Málnefndin getur
átt frumkvæði að ábendingum um
það sem vel er gert og það sem betur má fara
við meðferð íslenskrar tungu á opinberum
vettvangi. Íslensk málnefnd semur íslenskar
ritreglur sem gilda m.a. um stafsetningarkennslu í skólum
og ráðherra gefur út. Grundvallarbreytingar á
ritreglum eru háðar samþykki ráðherra.
Skrifstofa Íslenskrar málnefndar
er í Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum.
Ráðherra setur reglugerð um
nánari starfsemi Íslenskrar málnefndar.“
Áður hafði verið fjallað um hlutverk
Íslenskrar málnefndar í 9. gr. laga
nr. 40/2006, um Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum. Við gildistöku
þessara nýju laga fellur það
ákvæði brott.