Fréttatilkynning
– Úrslit í Nýyrðasamkeppni í 5.–7. bekk grunnskóla
Úrslit hafa nú ráðist í Nýyrðakeppni í 5.–7.
bekk grunnskóla sem hleypt var af stokkunum á degi íslenskar tungu 16. nóvember
sl. Íslensk málnefnd hafði frumkvæði að keppninni en ásamt málnefndinni stóðu
Námsgagnastofnun, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og
Skýrslutæknifélag Íslands að keppninni. Undirbúningshópur sem stóð að keppninni
hefur nú lokið við að fara yfir úrlausnir. Alls bárust úrlausnir frá 1763
nemendum í 82 skólum (af 176 á öllu landinu) um allt land. Árið 2007 voru ríflega 13.000 nemendur í 5.–7. bekk í grunnskólum landsins og lætur
því nærri að ríflega 13% nemenda hafi skilað úrlausn. Vinna við yfirferð
úrlausna reyndist tímafrekari en gert var ráð fyrir í upphafi. Í upphafi var gert ráð fyrir að veita þrenn
verðlaun. Undirbúningshópurinn hefur nú ákveðið að veita í staðinn 8
viðurkenningar. Einn nemandi fær myndavél og bók og 7 aðrir fá eina bók hver.
Markmið samkeppninnar var að vekja athygli á því
að unnt er að nota íslensk orð þar sem oft eru notuð erlend orð eða slettur. Aðstandendur keppninnar telja að það markmið
hafi náðst. Ýmsar góðar tillögur komu fram en fæstar má telja mjög frumlegar
enda er ekki unnt að ætlast til þess af þessum aldurshópi.
Það kemur ekki á óvart að rúmlega 50% nemenda
leggja til orðið blandari fyrir mixer. Nefndin vill sérstaklega vekja athygli á
orðunum fjaðurdúkur, stökkdúkur og hoppa fyrir trampolin, orkuþeytingur, þeytingur og orkuskot
fyrir boost, lófaspilari og dvergspilari
fyrir Mp3, skjóla, hárstrokkur, höfuðstrokkur og strokkur fyrir buff og leggjabuxur og leggjur
fyrir leggings. Flest þessara orða
hafa verið notuð áður en ekki er víst að nemendunum hafi verið kunnugt um þau.
Enginn nemandi hafði fleiri en tvær af þessum tillögum á úrlausnarblaði sínu.
Reynt var að velja úrlausnir þar sem einhver af þessum tillögum kom fyrir og
aðrar tillögur þóttu nýtilegar og úrlausnin að öðru leyti þokkalega unnin.
Flestar tillögurnar sem hér eru nefndar komu fyrir á mörgum úrlausnum. Undantekningar
eru orðin skjóla fyrir buff og dvergspilari fyrir Mp3 en aðeins einn nemandi nefndi hvort orð.
Eftir nokkra umhugsun var ákveðið að veita 1.
verðlaun fyrir tillögu um orðið skjóla
fyrir buff. Orðið skjóla
er að vísu haft um ‚fötu‘ en í orðinu felst að það geti verið haft um eitthvað
sem ‚veitir skjól‘ og þetta fat gerir það svo sannarlega. Annað orð fyrir buff, strokkur, sem kom ríflega 26 sinnum fyrir, er einnig notað um ílát
til þess að strokka í rjóma.
Ákveðið var að veita 7 öðrum nemendum
viðurkenningar og fá þeir hver eina bók.
Þessar bækur verða veittar sem viðurkenningar:
Íslensk orðabók, fjórða útgáfa. Ritstjóri Mörður
Árnason. Edda útgáfa hf., Reykjavík 2007.
Íslensk samheitaorðabók. Ritstjóri Svavar
Sigmundsson. Styrktarsjóður Þórbergs Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur.
Háskóli Íslands. Reykjavík 2005.
Tölvuorðasafn, 4. útgáfa aukin og endurbætt.
Orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands tók saman. Ritstjóri Stefán Briem. Hið
íslenska bókmenntafélag í samvinnu við orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands.
Reykjavík 2005.
Þessir nemendur fá viðurkenningar:
Gréta
María Halldórsdóttir 5. bekk í Varmahlíðarskóla (1. verðlaun)
Sigfinnur
Andri Marinósson 5. bekk í Varmahlíðarskóla
Halldór
Kári Kristmundsson 5. X í Kópavogsskóla
Annalísa
Hermannsdóttir 6. LK í Hofsstaðaskóla
María
Lilja Harðardóttir 7- AE í Ártúnsskóla
Guðrún
Eiríksdóttir 7-AE í Ártúnsskóla
Victoría
Kristín Geirsdóttir 7. bekk í Patreksskóla (Grunnskóla Vesturbyggðar)
Bækur verða sendar til skólanna á næstu dögum.
Hópurinn sem vann að undirbúningi og úrvinnslu
keppninnar vill þakka öllum sem veittu aðstoð við undirbúning. Sérstaklega ber
að þakka Námsgagnastofnun sem sá um gerð og prentun veggspjalda og efnis sem
fór á vef stofnunarinnar. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum lagði til
vinnu starfsmanna sinna við undirbúning og úrvinnslu. Einnig ber að þakka
Skýrslutæknifélagi Íslands, styrktarsjóði Þórbergs Þórðarsonar og Margrétar
Jónsdóttur og Forlaginu fyrir að leggja til viðurkenningarbækur og
menntamálaráðuneytinu fyrir að styrkja verkefnið. Að lokum er vert að þakka
þeim sem tóku þátt í gerð veggspjalds með íslenskum tölvuorðum.
Greinargerð um keppnina verður birt bráðlega á vef
þeirra stofnana sem stóðu að samkeppninni.