Ljóðasamkeppni

 

Íslensk málnefnd og Samtök móðurmálskennara standa í sameiningu að ljóðasamkeppni unglinga á aldrinum 13–15 ára, þ.e.a.s. í þremur efstu bekkjum grunnskóla.

 

Úrslit verða tilkynnt á hundrað ára afmælisdegi ljóðskáldsins Steins

Steinars, 13. október 2008. Skilafrestur er til 1. júní 2008.

 

Landsbanki Íslands og Forlagið eru meðal styrktaraðila keppninnar. Vegleg bókaverðlaun verða veitt fyrir þau þrjú ljóð sem dómnefnd telur best. Einnig er ætlunin að verðlaunaljóðin og úrval annarra ljóða birtist í dagblaðinu 24 stundum.

 

Stefnt er að því að þessi ljóðasamkeppni ungmenna verði árlegur viðburður.

 

Aðstandendur keppninnar óska eftir því að kennarar komi upplýsingum um hana á framfæri við nemendur sína og hvetji alla til þátttöku. Ákjósanlegt gæti til dæmis verið að flétta ljóðasmíð inn í kennslustarfið, og gera yrkingar og skáldskap þannig að sjálfsögðu og eðlilegu verkefni nemenda. Von okkar er sú að kennarar viti af ungu fólki sem hneigist að ljóðagerð og hvetji þá einstaklinga sérstaklega til að vera með.

 

Leiðbeiningar:

Aldur: 13–15 ára  (8. 9. og 10. bekkur grunnskóla).

Skiladagur: 1. júní 2008

Yrkisefni er frjálst, svo og lengd og form, en kennarar mega gjarna velja þemu til að vinna með ef þeir vilja.

Ljóð skal setja í umslag merkt „Ljóðasamkeppni“ og senda Íslenskri málnefnd, Neshaga 16, 107 Reykjavík.

Ljóðin skulu merkt með dulnefni en rétt nafn höfundar, heimilisfang, (netfang, sími), skóli og bekkur fylgi með í lokuðu umslagi merktu sama dulnefni.

 

F.h. undirbúningshóps

Ingibjörg Haraldsdóttir, Katrín Kristinsdóttir, Sæmundur Helgason, Úlfhildur Dagsdóttir, Þorlákur Karlsson, Þórarinn Eldjárn